- 11. nóv 2009
- Sigga
- Prentvæn útgáfa
Bounty kaka
bounty-kaka
Hráefni
Aðferð
| 6 | stk | eggjahvítur |
| 3 | dl | sykur |
| 270 | gr | kókósmjöl |
- Þeytið eggjahvítur og blandið sykri smátt og smátt saman við. Þeytið þar til vel stíft (10 mín).
- Blandið kókósmjöli saman við með sleikju.
- Setjið deigið í tvö form og bakið við 200°C í 20 mín. í miðjum ofni.
- Kælið botnana.
Krem
Hráefni| 300 | gr | suðusúkkulaði |
| 100 | gr | smjör |
| 6 | stk | eggjarauður |
| 100 | gr | flórsykur |
- Bræðið smjör og súkkulaði yfir vatnsbaði, hrærið í af og til
- Þeytið eggjarauður og fljórsykur mjög vel saman.
- Blandið bræddu súkkulaðinu saman við og hrærið eins lítið og kostur er á
- Látið kremið strax á kalda botnana.
